Hvítá

Frábær ferð fyrir alla fjölskylduna !
  • Lengd: 1 klst.
  • Næstu ferðir; í maí
  • Hittumst á: Ölvaldstöðum 4, í reiðhöllinni
  • Hvar: 311 Borgarnes

Skemmtileg klukkustunda ferð þar sem farinn er niður að Hvítá og meðfram bökkum hennar. Hvítá er jökulá úr Eiríksjökli.
Fallegt landslag og mikil fjallsýn upp í Langjökul og Eiríksjökul einnig sést vel til Skessuhorns, Hafnarfjalls og Skarðsheiðar.
Ein elsta brú landsins séð úr fjarska (1928).
Í þessum ferðum gefst fólki kostur á því að fá að ríða út í vatn.

Það sem við sköffum:
  • Reiðhjálm
  • Reiðhanska
Gott að hafa með:
  • Vatnshelda skó
  • Vindjakka/úlpu
  • Góðan hlífðarfatnað sem er lipur.